Skip to product information
1 of 4

Uppsetning á hleðslustöð - einkastæði í fjölbýli

Uppsetning á hleðslustöð - einkastæði í fjölbýli

Í bílageymslu þar sem grunnkerfi Ísorku er þegar til staðar

Til að tryggja rafmagnsöryggi og deila afli á milli notenda þurfa hleðslustöðvar að tala saman í gegnum hugbúnað. Ísorka veitir viðskiptavinum sínum aðgang að einni fremstu hugbúnaðarlausn Evrópu á sviði raforkustýringar fyrir hleðslu rafbíla.

Viðskiptavinir í þjónustu hjá Ísorku geta einnig óskað eftir uppgjöri á raforkunotkun niður á einstaka notendur.

Innifalið í uppsetningu hleðslustöðvar:

  • Uppsetning í bílageymslu þar sem fyrir er grunnkerfi í þjónustu hjá Ísorku
  • Raflögn að greinatöflu, allt að 6 metrar
  • Varbúnaður í greinatöflu
  • Akstur á höfuðborgarsvæðinu*
  • Tilkynning til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar
  • Tenging við álagsstýringu

Ekki innifalið:

  • Tímavinna umfram 4 klst
  • Breyting á rafmagnstöflu eða rafkerfi
  • Umfram 6m lagnaefni
  • Jarðvinna, múrbrot, fræsing eða aukahlutir

* Ísorka starfar með mörgum færustu sérfræðingum landsins þegar kemur að uppsetningum hleðslustöðva og veitir þjónustu um allt land.

Ef kemur í ljós í upphafi uppsetningar að forsendur eru ekki innan ramma þess sem er innifalið þá er viðskiptavini gert grein fyrir þeim kostnaði sem kann að bætast við.

Allar uppsetningar eru unnar samkvæmt kröfum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

 

Áður en uppsetning er pöntuð skalt þú ganga úr skugga um að þitt fjölbýli sé nú þegar með grunnkerfi í þjónustu hjá Ísorku. 

Ef grunnkerfi er ekki til staðar þá hvetjum við þig til að hafa samband og fá tilboð

Ef þitt húsfélag er með hleðslulausn frá öðrum þjónustuaðila eða um er að ræða stæði sem ekki er í bílageymslu, veitum við einnig góð ráð.

Ekki hika við að senda okkur línu á isorka@isorka.is eða heyra í okkur í síma 568 7666 ef einhverjar spurningar vakna.

Regular price 97.000 kr.
Regular price Sale price 97.000 kr.
Sale Sold out
Taxes included. Shipping calculated at checkout.
View full details