Shipping policy
Afhending og seinkun
Afhending telst vera innan eðlilegra tímamarka frá útgáfudegi reiknings. Tekið er fram í kaupferlinu hverju má búast við miðað við valda sendingarleið. Seljandi afhendir vörur einungis innan Íslands. Ef afhendingu seinkar mun seljandi tilkynna það til kaupanda ásamt upplýsingum um hvenær pöntunin verður tilbúin til afhendingar eða bjóða staðgengilsvörur ef að varan er uppseld.
Afhendingarmátar í Vefverslun Ísorku eru; Senda á næsta pósthús við viðtakanda, heimkeyrsla með póstinum (þar sem það er í boði), Sendibíll fyrir stór tæki innanbæjar og sækja vöru á lager Dugguvogi 4, 104, Reykjavík. Allar pantanir yfir kr. 20.000 krefst undirskriftar korta/reikningseiganda gegn framvísun persónuskilríkja þ.e. passa eða ökuskírteinis.
Pósturinn: Allar pantanir yfir kr. 20.000 krefjast undirskriftar korta/reikningseiganda gegn framvísun persónuskilríkja þ.e. passa eða ökuskírteinis. Pantanir undir kr. 20.000 eru afhentar aðila á afhendingarstað . Ef að enginn er við þegar pöntun er afhent upp að dyrum er tilkynning stungið inn um bréfalúgu ef kostur er. Allar skemmdir á vörum af hendi flutningsaðila eru á þeirra ábyrgð og að fullu bætt gagnvart viðskiptavin. Skemmdir eftir að vara hefur verið afhent er á ábyrgð kaupanda. Ef að afhending vöru í heimakstri reynist árangurslaus er hægt að óska eftir nýjum afhendingartíma gegn gjaldi sem greitt er beint til póstsins.
Sækja í vöruhús: Hægt er að sækja vöru til okkar í Dugguvogi 4, 104 Reykjavík ef vara er geymd þar.
Ef óskað er eftir að geyma vöru í vöruhúsi Ísorku er geymslutími miðaður við 2 vikur, ef óskað er eftir að geyma vöru lengur en það er krafist mánaðarlegt geymslugjalds sem um nemur 5% af upphæð vörunnar.