Hleðslustöðvar í fjölbýlishúsið

Ísorka er leiðandi í lausnum fyrir fjölbýli á Íslandi. Við aðstoðum þig og sjáum um allt ferlið frá hugmynd að framkvæmd. Í framhaldi af því önnumst við alla þjónustu og rekstur í samráði við húsfélagið.

Við sjáum um allt ferlið fyrir húsfélagið

Fá tilboð

Við ráðleggjum þér

Ísorka ráðleggur húsfélögum hvernig best er að hlaða rafbílinn á sameignarstæðum eða inni í bílsastæðahúsi.

Uppsetning á hleðslustöðvum

Ísorka ráðleggur húsfélögum og sér um alla uppsetningu og aðgerðir tengdar hleðslustöðvunum.

Fylgjumst með notkun

Með þjónustu Ísorku getur bæði hússtjórn og íbúi fylgst með allri notkun. Ísorka sér samhliða um alla greiðslumiðlun og tryggir að allir fái sitt.

Ísorka vaktar allt

Ísorka vaktar allar stöðvar og veitir þjónustu allan sólarhringinn til notenda.

Fullkomin þjónusta fyrir fjölbýli

Ísorka þekkir þarfir húsfélaga. Við bjóðum ekki bara upp á þjónustu við uppsetningu og viðhald heldur líka ráðgjöf til framtíðar. Hjá okkur stjórnar húsfélagið verðinu til íbúa og hvar rafmagnið er verslað.

Enginn annar hefur viðlíka reynslu af uppsetningu, viðhaldi, þjónustu og sérsniðnum lausnum fyrir fjölbýli.

Ísorka sér um bókhaldið

Með þjónustu Ísorku þarf húsfélagið ekki að mæla og rukka fyrir notkun, Ísorka sér um málið. Íbúar greiða einfaldlega fyrir sína notkun án vandræða fyrir húsfélagið

Stöðug vöktun og þjónusta

Ísorka sér um aðgangsstýringu, vöktun, álagsdreyfingu og veitir þjónustu allan sólarhringinn. Sama hvað bjátar á, við erum tilbúin fyrir þig.

Snjallari álagsdreifing

Ísorka er eina fyrirtækið sem býður álagsdrefingalausn sem býður notendum að blanda saman tegundum hleðslustöðva. Ekki láta binda þig við einn framleiðanda.

Auktu virði eignarinnar

Rafbílar eru venjubundinn hluti af lífstíl margra og fjölbýli sem kjósa lausn sem virkar fyrir íbúa sína verða álitlegri á fasteignamarkaðnum.
Fá tilboð

Húsfélagaþjónusta sem þú getur treyst

Ísorka er traustur samstarfsaðili sem sér ekki bara um uppsetningu á hleðslustöðvum og lausnum þeim tengdum heldur viðhald og þjónustu. Okkar markmið er að þín orkuskipti verði auðveld og ánegjuleg.

"
Tilboð Ísorku var mjög raunhæft og þeir höfðu reynslu af þjónustu við fjölbýlishús. Þá var kerfi þeirra opið og með því vorum við að tryggja fjárfestingu okkar.

Hilmar Freyr Kristinsson

Formaður húsfélags Mánatúns og Sóltúns

350
Fjöldi húsfélaga í viðskiptum
45.000
Virkir notendur
99%
Uppitími hleðslustöðva
56.000
Rafbílaeigendur með appið

Getum við aðstoðað?

Ísorka hefur gríðarlega reynslu af öllu sem tengist hleðslu fyrir rafbíla. Hafðu samband og við aðstoðum þig við að velja lausnir sem henta þér.

Hafa samband