Hleðslulausnir fyrir fyrirtæki

Ísorka er traustur samstarfsaðili sem sér ekki bara um uppsetningu á hleðslustöðvum og lausnum þeim tengdum heldur viðhald og þjónustu. Okkar markmið er að þín orkuskipti verði auðveld og ánægjuleg.

Við sjáum um allt ferlið fyrir fyrirtækið

Hafa samband

Við ráðleggjum þér

Ísorka ráðleggur fyrirtækjum og sér um alla uppsetningu og aðgerðir tengdar hleðslustöðvunum.

Fylgjumst með notkun

Við mælum og höldum utan um alla notkun. Það skiptir máli bæði fyrir rekstur og grænt bókhald.

Deila hleðslustöð

Með okkar lausnum er bæði hægt að hlaða bíla starfsmanna og fyrirtækisins.

Uppbygging hleðslustöðva

Öll okkar ráðgjöf miðast við að byggja upp hleðslulausnir í réttum áföngum; gera ráð fyrir stækkun og tryggja virkni í takt við þarfir.

Ávinningur af uppsetningu hleðslustöðva

Aukin starfánægja

Veittu starfsfólki þínu aðgang að hleðslustöð og auktu þannig starfsánægju og hagkvæmni í rekstri. Við bjóðum allar lausnir sem snúa að rekstri hleðslustöðva sem og álagsstýringar til þess að hlaða bílaflotann þinn. Lausnin vex í takt við þínar þarfir og notkun.

Aukin starfánægja

Ánægðir viðskiptavinir

Laðaðu að viðskiptavini og vektu athygli með því að bjóða upp á hleðslu hjá þínu fyrirtæki. Ísorka finnur lausnina sem hentar þínum aðstæðum og kemur að öllum verkþáttum sem snúa að vali á búnaði og uppsetningu.

Ánægðir viðskiptavinir

Þú getur hagnast á að bjóða hleðslu

Hleðslulausnir Ísorku gera þér ekki aðeins mögulegt að bjóða viðskiptavinum þínum og starfsfólki að hlaða bílinn, heldur getur þú einnig haft tekjur af hleðslulausninni.

Notendur greiða fyrir hleðsluna sem þeim býðst og þú færð greitt inn á þinn reikning samkvæmt þinni verðlagningu.

Stór hópur notenda

Notendur Ísorku finna þínar hleðslustöðvar auðveldlega í gegnum appið. Með Ísorkuappinu eru þínar hleðslulausnir sýnilegar tugþúsundum íslenskra notenda og milljónum erlendra.

Þitt verð

Þú ræður verðinu á þínum hleðslustöðvum á meðan við þjónustum og vöktum stöðvarnar.

Gagnsæ lausn og vöktun

Með þjónustu Ísorku kemur fullkomin greiðslugátt fyrir staðgreiðslu sem skilar greiðslum milliliðalaust inn á þinn reikning.

Hlaða eigin rafbílaflota

Þú getur hlaðið flotann þinn með einföldum hætti. Við höfum allar lausnir sem snúa að rekstri rafbíla sem og álagsstýringar til þess að hlaða flotann þinn.

Uppbygging

Við hjá Ísorku veitum góða ráðgjöf um val á búnaði sem hentar til þess að hlaða flotann þinn.

Flotastýring

Við pössum upp á að þú hafir yfirsýn yfir hvaða bílar taka hvaða rafmagn og hvar. Sami aðgangur virkar um allt land.

Álagsdreifing

Við veitum alla þá ráðgjöf sem þörf er á til þess að setja upp hleðslustöðvar fyrir eigin bílaflota fyrirtækja.

Stofna til reikningsviðskipta

Sæktu um reikningsviðskipti fyrir þitt fyrirtæki eða hafðu samband til að fá frekari ráðgjöf um þjónustuleiðir til fyrirtækja.

Fá aðgang að hleðsluneti Ísorku

Skráðu þig til að fá hleðslulykil og Ísorkuappið og fáðu aðgang að hundruðum hleðslustöðva víðsvegar um landið.

Fjöldi hleðslustöðva:
4.300
Virkir notendur:
60.000
Uppitími hleðslustöðva:
99%

Fyrirtækjaþjónusta sem þú getur treyst

Ísorka er traustur samstarfsaðili sem sér ekki bara um uppsetningu á hleðslustöðvum og lausnum þeim tengdum heldur viðhald og þjónustu. Okkar markmið er að þín orkuskipti verði auðveld og ánægjuleg.

Hleðslulausnir fyrir fyrirtæki

Hleðslustöðvarnar okkar henta fyrir allar gerðir rafbíla. Við erum bæði með  hefðbundnar tegundir hleðslustöðva, sem festast á veggi eða staura, og hraðhleðslustöðvar sem hlaða bílinn á mun skemmri tíma.

Getum við aðstoðað?

Ísorka hefur gríðarlega reynslu af öllu sem tengist hleðslu fyrir rafbíla. Hafðu samband og við aðstoðum þig við að velja lausnir sem henta þér.

Fá tilboð