Ísorka fyrsta hleðslustöðvarfyrirtækið í Evrópu sem býður virkar vottaðar kolefniseiningar

Ísorka ehf.

21. maí 2024

Í fyrsta skipti á Íslandi verða til vottaðar kolefniseiningar sem hægt er að nýta strax.

Á Íslandi hafa hingað til aðeins verið í boði kolefniseiningar í bið eins og þekkist til dæmis úr skógræktarverkefnum. Í lok mars kláraðist formlega það ferli Ísorku að votta kolefniseiningar út frá aðferðafræðinni VM0038 frá alþjóðlega staðlinum Verra sem metur hvernig aukið aðgengi rafhleðslustöðva spornar gegn bruna á jarðefnaeldsneyti.

 

„Ísorka er fyrsta fyrirtækið í Evrópu sem tekst á við þessa vottun, áfanginn er því mikil tímamót og staðfestir mikilvægi orkuskipta í vegferðinni að aukinni sjálfbærni,“ segir Sigurður Ástgeirsson, framkvæmdastjóri Ísorku. Síðan 2016 hefur Ísorka mælt og viðhaft rekjanleika í allri starfsemi sinni. „Sú framsýni tryggir gæðin og gerir þessa vottun mögulega. Jafnframt styðja verkefni Ísorku við markmið Íslands í loftlagsmálum sem og heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna.“ segir Sigurður.

 

Vottunin er alþjóðleg og gildir fyrir rafhleðslustöðvar fyrir bæði lítil og stór farartæki. Aðferðafræðin býður leið til að reikna út og votta losun gróðurhúsalofttegunda út frá uppsetningu, rekstri og notkun rafhleðslustöðva og hleðslu viðeigandi rafbílaflota og vottar kolefniseiningarnar út frá forvörninni. Áætlað er að starfsemin komi í veg fyrir losun á að meðaltali um 37.500 tonnum af CO2 / ári og 375.000 tonnum af CO2 á öllu vottunar tímabilinu (2021-2030) auk þess að skrá í loftlagsskrá Verra vottaðar kolefniseiningar út frá þessu magni. Vottun Ísorku nær aftur í tímann, allt til janúar 2022.

 

„Þessi vinna markar tímamót á Íslandi. Fyrirtæki geta nú með ábyrgum hætti tekið ábyrgð á eigin mengun og kolefnisspori með vottuðum kolefniseiningum og kolefnisjafnað þannig bæði hratt og örugglega.“ segir Sigurður.

 

Hingað til hafa aðeins verið í boði svokallaðar „einingar í bið“ frá örfáum skógræktarverkefnum á Íslandi en ólíkt þeim geta lögaðilar nýtt virkar kolefniseiningar jafnóðum til að öðlast kolefnishlutleysi.

 

„Nú er loks kominn annar valkostur fyrir fyrirtæki sem vilja nýta kolefniseiningar í sínar mótvægisaðgerðir en vilja jafnframt fylgja leikreglunum um ábyrga og vottaða kolefnisjöfnun.“ bætir Aríel Jóhann Árnason, framkvæmdastjóri Súrefnis við. „Fram til þessa hafa reglur á þessum nýja markaði verið óljósar en með tilkomu vottaðra og virkra eininga geta íslensk fyrirtæki nú staðið jafnfætis samkeppnisaðilum erlendis þegar kemur að sjálfbærni.

 

Súrefni vottaðar einingar (surefni.is); ráðgjafastofa og kolefnisjöfnunarhús hafði yfirsýn með vottunarferlinu og sinnir nú sölu eininganna. Fyrirtækin Verkís, bílaumboðið BL, Pipar/TBWA og Hertz hafa þegar fest kaup á einingum til eigin mótvægisaðgerða í loftslagsmálum.

Skráning verkefnisins loftlagsskrá Verra má finna hér.

 

Níels Einar Reynisson frá Verkís, Sigurður Ástgeirsson frá Ísorku, Brynjar Elefsen frá BL, Sigurður Berndsen frá Hertz, Halldór Reykdal frá Pipar/TBWA og Aríel Jóhann Árnason frá Súrefni.

Ísorka ehf.

21. maí 2024
Við notum vefkökur
Vefsíða notar vefkökur (e. cookies)
til að gera upplifun þína af vefnum okkar betri.

Við notum vefkökur

Vefkökur sem eru notaðar er skipt í nokkra flokka og hér getur þú lesið um hvern flokk og samþykkt eða hafnað að vild. Ef áður samþykktum flokki er hafnað er öllum vefkökum í þeim flokki eytt úr vafranum þínum. Hér getur þú lesið nánar um vefkökur og persónuvernd.