Ísorka hefur nú sett upp glænýja hraðhleðslustöð hjá Olís Neskaupstað við Hafnarbraut 19.
Þetta er gríðarlegt fagnaðarefni fyrir íbúa austurlands enda lengi vantað almennilega hraðhleðslu á svæðið.
Um er að ræða 150Kw Alpitronic Hypercharger stöð sem hefur 2 x CCS tengi.
Ísorka fagnar þessari viðbót í hraðhleðslunetið sitt og vonar innilega að stöðin muni þjóna rafbílaeigendum á svæðinu öllu vel, sem og öðrum notendum Ísorku.
Stöðin er sett upp í samstarfi við Olís og Orkusjóð. Þú getur að sjálfsögðu séð stöðina í appinu okkar!