Búðardalur í hleðslunet Ísorku

Ísorka ehf.

21. júní 2023
Dalabyggð bætist við hraðhleðslunet Ísorku
Ísorka straumsetti nýlega ómótstæðilega hraðhleðlsustöð við Krambúðina í Búðardal.

Þetta "náttúruundur" er að sjálfsögðu sýnilegt í appinu okkar.
Verkefnið var unnið náið með Samkaup og stefnt er að frekara samstarfi, rafbílaþjóðinni til hagsbóta.
Þetta er gríðarlegt fagnaðarefni fyrir Dalabyggð og ættu allir að getað ferðast hleðslukvíðalausir heim í Búðardal og nágrenni. 

Um er að ræða 150Kw Alpitronic Hypercharger stöð sem hefur 2x CCS tengi.

Ísorka fagnar þessari viðbót í hraðhleðslunetið sitt og vonar innilega að stöðin muni þjóna rafbílaeigendum í Dalabyggð vel, sem og öllum öðrum Ísorku notendum. 

 

Næstum því verðlaunamynd af stöðinni í Búðardal

Ísorka ehf.

21. júní 2023
Við notum vefkökur
Vefsíða notar vefkökur (e. cookies)
til að gera upplifun þína af vefnum okkar betri.

Við notum vefkökur

Vefkökur sem eru notaðar er skipt í nokkra flokka og hér getur þú lesið um hvern flokk og samþykkt eða hafnað að vild. Ef áður samþykktum flokki er hafnað er öllum vefkökum í þeim flokki eytt úr vafranum þínum. Hér getur þú lesið nánar um vefkökur og persónuvernd.