![AVIS með nýja hraðhleðslustöð á Ísafirði](http://isorka.is/cdn/shop/articles/45.jpg?v=1657830442&width=1100)
AVIS með nýja hraðhleðslustöð á Ísafirði
Share
AVIS hefur sett upp 75 kW DC stöð fyrir utan flugstöðina á Ísafirði sem síðar verður uppfærð í 150 kW
Með hraðhleðslustöðinni leggur AVIS grunn að orkuskiptum eigin bílaflota. Stöðin er tengd við Ísorku og aðgengileg öllum í gegnum Ísorku-appið og/eða með Ísorku-lykli.
![](https://cdn.shopify.com/s/files/1/0522/3042/2717/files/457645674h_480x480.jpg?v=1657830259)
Hraðhleðslustöðin er frábær viðbót sem þéttir hleðslunet Ísorku enn frekar. Stöðin er annað skref í samstarfi AVIS og Ísorku í uppsetningu hraðhleðslustöðva og gert er ráð fyrir fleiri stöðvum á næstu misserum í öllum landshlutum.
Verkefnið var unnið í samstarfi við Orkusjóð og er hluti af innviðastyrkjum fyrir vistvæn ökutæki.
Stöðin er aðgengileg í Ísorku appinu ásamt öllum öðrum betri hleðslustöðvum um allt land.
Stöðin er af gerðinni Hypercharger, nánar er hægt að kynna sér hana hér