Allt að 5 milljónir í styrk fyrir hleðsluinnviði

Allt að 5 milljónir í styrk fyrir hleðsluinnviði

Loftslags- og orkusjóður hefur opnað fyrir umsóknir um styrki til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús. Styrkirnir eru ætlaðir húsfélögum í fjölbýlishúsum með átta íbúðir eða fleiri þar sem byggingarleyfi var gefið út fyrir 20. júní 2018.

Hægt er að fá allt að 5 milljónir króna í styrk fyrir hvert verkefni, þó aldrei meira en 50% af heildarkostnaði. Meðal styrkhæfra framkvæmda eru lagnaleiðir frá rafmagnstöflu að bílastæðum og stækkun eða endurnýjun rafmagnstenginga sem nauðsynlegar eru til að koma upp hleðsluaðstöðu.

Fyrir mörg húsfélög getur þetta verið kjörið tækifæri til að undirbúa sameiginleg bílastæði fyrir aukna notkun rafbíla og lækka stofnkostnað við uppbyggingu innviða. Umsóknarfrestur er til 1. október 2026.

Við aðstoðum húsfélög og fasteignaeigendur við alla þætti verkefnisins, allt frá ráðgjöf og hönnun til uppsetningar hleðslustöðva, þjónustu og greiðslumiðlunar. Hafðu samband ef þú vilt kanna hvaða lausn hentar þínu húsfélagi best.

Hafðu samband í gegnum netfangið isorka@isorka.is, í síma S: 568 7666 eða með því að senda okkur fyrirspurn.

Nánar um hleðslulausnir fyrir húsfélög.

Back to blog